Frá 1. apríl næstkomandi verður Olísstöðin í Borgarnesi opin allan sólarhringinn. Þórður Jónsson stöðvarstjóri segir að þessi opnunartími verði ákveðin tilraun en hugsaður til frambúðar. „Við ætlum að henda lyklunum á laugardagskvöldið. Það verður opið alla páskana. Þetta er hugsað til framtíðar, en fer eftir því hvernig viðtökur verða,“ segir Þórður. Drjúg umferð er til og í gegnum Borgarnes og Olísmenn segjast vera í góðri stöðu til að nýta sér það. „Olís hafa verið að hafa opið allan sólarhringinn á fleiri stöðum undanfarið, en ég held að þetta sé fyrsti og eini svona staðurinn hér á Vesturlandi sem verður með opið allan sólarhringinn.“ Þórður nefnir einnig að þetta muni skapa einhver störf, því svona lengdur opnunartími kalli á fleiri starfsmenn.
|