Landssamtök sauðfjárbænda (LS) halda aðalfund sinn í Bændahöllinni í Reykjavík í dag og á morgun. Fjöldi mála er á dagskrá fundarins sem hófst klukkan 10 í morgun. M.a. lúta þau að búvörusamningum, landnýtingu, rannsóknum í sauðfjárrækt og kjaramálum. Sigurgeir Sindri Sigurgeirsson í Bakkakoti í Stafholtstungum, formaður LS, mun ekki gefa kost á sér til áframhaldandi formennsku í samtökunum. Kosning um nýjan formann verður á morgun. Tveir frambjóðendur hafa boðið sig fram en þeim gæti þó fjölgað á fundinum. Þeir eru Þórarinn Ingi Pétursson bóndi á Grýtubakka og Einar Ófeigur Björnsson bóndi í Lóni í Kelduhverfi . Þórarinn hefur setið í stjórn LS frá 2007 og er nú varaformaður samtakanna. Hann er jafnframt formaður fagráðs í sauðfjárrækt. Einar hefur starfað lengi að málefnum sauðfjárbænda og á nú sæti í varastjórn samtakanna. Einar er jafnframt formaður deildar sauðfjárbænda í Búnaðarsambandi N-Þingeyjarsýslu sem er eitt aðildarfélaga LS.
|