Sjóbirtingsveiðin byrjaði í gærmorgun í Leirá í Leirársveit. Á veiðislóð voru Örn Helgason og eiginkona hans Elísabet Hannam. Byrjuðu þau snemma morguns, voru að veiða fyrir neðan þjóðveginn í Brúarhylnum sem hefur oft gefið vel.
"Þetta er frábært. Ég setti í fisk áðan en hann slapp,” sagði Örn þar sem hann kastaði á hylinn og Elísabet sýndi okkur að einhver hefði verið á undan þeim um morguninn. Minkurinn hafði verið við hylinn í morgunsárið. Skömmu seinna setti Örn í tveggja punda fisk og sleppti honum aftur í ána, en þetta var ofarlega í ánni. Vatnið er mikið þessa dagana og nógur snjór í fjöllum. ,,Ég held að þetta verði gott sumar í veiðinni,” sagði Örn og hélt áfram að kasta flugunni.
|