Í dag fer fram árleg dimmittering útskriftarhóps nemenda í Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi. Venju samkvæmt setti útskriftarhópurinn á svið stutta revíu þar sem tekin voru fyrir, með spaugilegum hætti, valin atvik úr skólahaldi og félagslífi nemenda frá liðnum vetri. Revían þykir ómissandi hjá mörgum og var hátíðarsalur FVA því þétt setinn gestum. Þema í búningavali útskriftarhópsins í ár voru Steinaldarmennirnir eða The Flintstones. Í kvöld halda loks útskriftarnemar á lokaball nemendafélag skólans ásamt öðrum nemendum þar sem vafalaust verður skvett úr klaufunum.
|