Prentað föstudaginn 24. maí kl. 19:38 af www.skessuhorn.is
Yfirflokkur: Fyrirtæki - þjónustaYfirflokkur: FólkiðYfirflokkur: StjórnsýslaYfirflokkur: Skessuhorn
Spurning vikunnar

Hvernig líst þér á nýju ríkisstjórnina?

Mjög illa

Frekar illa

Hlutlaus

Frekar vel

Mjög vel

Leitarvélar
Skessuhorn
Leit.is
Símaskrá
Firmaskrá
Embla
Google
Athyglisverðar síður

 

   

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Skessuhorn:

Rannsaka eyðibýli á Vesturlandi á næstu dögum

8. júní 2012

Átta háskólanemar úr verkfræði, arkitektúr, jarðfræði og fornleifafræði vinna nú við rannsóknir á eyðibýlum á Íslandi með stuðningi Nýsköpunarsjóðs námsmanna. Fyrstu skref verkefnisins voru tekin sumarið 2011 þegar rannsókn fór fram á eyðibýlum og yfirgefnum húsum í Austur-Skaftafellssýslu, Vestur-Skaftafellssýslu og Rangárvallasýslu en í sumar mun rannsóknin ná til tveggja ólíkra landsvæða, annars vegar Vesturlands og hins vegar Norðurlands eystra. Fyrstu vettvangsferðir sumarsins hefjast í sveitarfélögunum Snæfellsbæ og Langanesbyggð mánudaginn 11. júní næstkomandi. Rannsóknum sumarsins lýkur með kynningu á verkefninu og bókaútgáfu á haustmánuðum.Til stendur að skrásetja á komandi árum allt landið á þennan máta og þar með mun skapast verðmætur þekkingargrunnur um líf Íslendinga fyrr á tímum.

 

 

 

 

Hugtakið eyðibýli er hér notað í nokkuð víðum skilningi. Það er látið ná yfir yfirgefin hús í sveitum og smærri þéttbýlisstöðum, jafnvel þótt þau standi þar sem enn er önnur byggð til staðar, þ.e. ekki eingöngu á eyðijörðum. Eyðibýli geta haft mikla þýðingu af ýmsum ástæðum. Þau geta verið merkar menningarminjar og mikilvægrar heimildir um byggðasögu. Aldur húsanna, húsagerð eða byggingarlag þeirra getur verið sérstakt en einnig er sérstaða húsanna í búsetulandslagi sveitanna oft mikil. Markmið verkefnisins er að meta menningarlegt vægi einstakra húsa og varðveita þannig valin yfirgefin hús á Íslandi. Í framhaldinu að kanna hvort grundvöllur sé fyrir því að eyðibýli og yfirgefin hús í sveitum landsins verði gerð upp af eigendum þeirra og/eða stofnað félag um rekstur og útleigu þeirra í ferðaþjónustu. Verkefnið hefur á nýliðnum vetri verið tilnefnt til Nýsköpunarverðlauna forseta Íslands, Menningarverðlauna DV og Hvatningarverðlauna iðnaðarráðherra.

Rannsóknarhópur sumarsins er fullur tilhlökkunar fyrir komandi könnunarleiðöngrum og sendir landsmönnum fyrirfram sínar bestu kveðjur. Hægt er að fylgjast með framgangi verkefnisins á facebook: www.facebook.com/Eydibyli. Einnig má hafa samband við rannsakendur í gegnum netfangið eydibyli@gmail.com.

 
 
Senda á Facebook


SENDA ÞESSA FRÉTT Í TÖLVUPÓSTI

Netföng viðtakenda:



Hvað er þrír plús fjórir?

  

Skilaboð

Nafn sendanda:

 
Vefpóstur
Skessuhorn fréttasafn
Vestfirðir Suð-Austurland Vesturland Austurland Norðurland Suð-Vesturland Landið allt Suðurland
Kjalarnes 19:30  A 5  9°C
Akrafjall 19:30  A 3  8°C
Hafnarfjall 19:30  SSA 5  9°C
Vatnaleið 19:30  SSA 5  7°C
Hraunsmúli 19:30  ANA 1  9°C
Fróðárheiði 19:30  ASA 6  5°C
Brattabr. 19:30  S 6  5°C
Holtav.h. 19:30  SSV 1  5°C
Laxárdalsh. 19:30  ANA 4  6°C
Svínad. 19:30  ASA 4  8°C
 
 
Samstarfsaðilar
Aðsendar greinar
 
Sveitarfélögin - fréttir
 
Fyrirtæki, stofnanir, þjónusta:
 
mbl.is - innlent