Prentað fimmtudaginn 23. maí kl. 10:39 af www.skessuhorn.is
Yfirflokkur: Fyrirtæki - þjónustaYfirflokkur: FólkiðYfirflokkur: StjórnsýslaYfirflokkur: Skessuhorn
Spurning vikunnar

Fylgist þú með íslenska boltanum?

Já, alltaf

Já, stundum

Nei, aldrei

Vil ekki svara

Leitarvélar
Skessuhorn
Leit.is
Símaskrá
Firmaskrá
Embla
Google
Athyglisverðar síður

 

   

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Skessuhorn:

Útifundur þar sem sjávarútvegsfrumvörpum var mótmælt

8. júní 2012

Sjómenn, útgerðarmenn, landverkafólk og fleiri hagsmunaaðilar í sjávarútvegi komu saman til útifundar á Austurvelli sl. fimmtudag þar sem kvótafrumvörpum ríkisstjórnarinnar var harðlega mótmælt. Lögregla áætlar að um tvö þúsund manns hafi mætt á fundinn. Hluti hópsins sem staddur var á Austurvelli var reyndar mættur þar í þeim tilgangi að mótmæla útvegsmönnum og málstað þeirra og bauluðu þegar ávörp voru flutt. Um tíma var loft þrungið spennu þar sem andstæðar fylkingar komu saman á litlum túnbletti. Til óspekta kom þó ekki en töluvert um frammíköll og háreisti. Viðbúnaður lögreglu var töluverður og var þinghúsið til að mynda girt af eins með rammgerðum girðingum. Á mótmælafundinum fluttu ávörp fulltrúar sveitarstjórna, LÍU, Farmanna- og fiskimannasambandsins, stoðfyrirtækja við sjávarútveg og skipsstjórnarmanna.

 

 

 

 

Frummælendur kröfðust þess m.a. að haft yrði samráð við hagsmunaaðila þegar kvótafrumvörpin verða afgreidd sem lög. Í máli þeirra var hvatt til að tekið verði tillit til umsagna þar sem fram kemur hörð gagnrýni á frumvarpsdrögin eins og þau líta nú út. Fyrirhugað veiðigjald væri t.d. of hátt og myndi þar að auki virka sem enn einn landsbyggðarskatturinn. Um sjötíu stórum fiskiskipum var siglt til Reykjavíkurhafnar vegna fundarins og hafa ekki verið svo mörg skip þar á sama tíma í áratugi. Eftir útifundinn héldu skipin út til veiða.

 

 
 
Senda á Facebook


SENDA ÞESSA FRÉTT Í TÖLVUPÓSTI

Netföng viðtakenda:



Hvað er þrír plús fjórir?

  

Skilaboð

Nafn sendanda:

 
Vefpóstur
Skessuhorn fréttasafn
Vestfirðir Suð-Austurland Vesturland Austurland Norðurland Suð-Vesturland Landið allt Suðurland
Kjalarnes 10:30  ANA 11  6°C
Akrafjall 10:20  A 3  7°C
Hafnarfjall 10:30  NV 2  6°C
Vatnaleið 10:30  SA 10  2°C
Hraunsmúli 10:30  A 5  4°C
Fróðárheiði 10:20  A 10  -0°C
Brattabr. 10:20  S 6  3°C
Holtav.h. 10:30  SSV 7  4°C
Laxárdalsh. 10:30  SSV 4  6°C
Svínad. 10:20  SA 5  5°C
 
 
Samstarfsaðilar
Aðsendar greinar
 
Sveitarfélögin - fréttir
 
Fyrirtæki, stofnanir, þjónusta:
 
mbl.is - innlent