Á fundi bæjarráðs þann 31. janúar sl. var lögð fram bókun vegna umræðu um hækkanir á gjaldskrám sveitarfélaga að undanförnu sem og í tilefni af viðræðum við forystumenn ASÍ. Segir þar m.a.: „Bæjarstjórn Akraness hefur kappkostað að stilla gjöldum í hóf en lagt ríka áherslu á að bæjarbúar nytu öflugrar, skilvirkrar og ódýrrar þjónustu af hálfu bæjarfélagsins. Nýlegar breytingar á gjöldum og sköttum til Akraneskaupstaðar hafa verið innan þeirra marka sem hækkanir á vísitölu hafa gefið tilefni til. Verð á heitu vatni lækkaði 1. desember um 34% að meðaltali og á rafmagni um 11% til heimila. Verðlækkun heita vatnsins nemur 60-70 milljónum króna á Akranesi og er því ein sér drjúgur skerfur í baráttunni gegn verðbólgu og bætir afkomu orkukaupenda í bænum sem þeirri upphæð nemur. Bæjarráð samþykkir að lækka dagvistargjöld leikskólanna frá og með 1. mars nk. þannig að þau verði hin sömu og fyrir 1. október sl. Eftir þá gjaldskrárlækkun verða leikskólagjöld á Akranesi með þeim lægstu í landinu. Bæjarráð samþykkir að sundlaugargjöld verði óbreytt úr árið. Bæjarráð leggur áherslu á að bæjarbúar njóti áfram góðrar þjónustu af hálfu bæjarins og greiði fyrir hana verð er standist samanburð við sambærilegar greiðslur í öðrum sveitarfélögum.“ |