Skessuhorn: |
|
Bæjarfulltrúar deila |
Akurnesingar ekki á eitt sáttir um úrsögn úr SSV |
28. janúar 2000 |
| Frá því meirihluti bæjarstjórnar Akraneskaupstaðar samþykkti úrsögn úr Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi, sem taka á gildi frá næstu áramótum, hafa bæjarfulltrúar minni- og meirihluta deilt harkalega um ágæti úrsagnarinnar. Orð eins og valdarán, pólitískur rottugangur, tindátaleikur og barnaskapur hafa flogið í hvössum sendingum milli manna í orrahríð sem sennilega er rétt að byrja á Akranesi um þetta mál. |
Í Skessuhorni þessa viku eru þrír bæjarfulltrúar sem tjá sig um þetta mál í viðtölum og greinum. Sjálfstæðismennirnir Pétur Ottesen fyrrverandi formaður SSV og Gunnar Sigurðsson núverandi formaður deila báðir hart á meirihluta bæjarstjórnar, fulltrúa Akraneslistans og Framsóknarflokks, fyrir ákvörðun þeirra. Sveinn Kristinsson oddviti Akraneslistans segir m.a. í viðtali í blaðinu að pólitískt samráð sjálfstæðismanna á Vesturlandi um formannskjör í SSV hafi verið dropinn sem fyllti mælinn því Skagamenn hafi aldrei verið ánægðir með störf SSV.
Þeim sem vilja fræðast nánar um þessi pólitísku átök er bent á prentútgáfu Skessuhorns frá því í gær. |
|
| MM |
| |
 |
| |
|
|