Prentað föstudaginn 24. maí kl. 23:00 af www.skessuhorn.is
Yfirflokkur: Fyrirtæki - þjónustaYfirflokkur: FólkiðYfirflokkur: StjórnsýslaYfirflokkur: Skessuhorn
Spurning vikunnar

Hvernig líst þér á nýju ríkisstjórnina?

Mjög illa

Frekar illa

Hlutlaus

Frekar vel

Mjög vel

Leitarvélar
Skessuhorn
Leit.is
Símaskrá
Firmaskrá
Embla
Google
Athyglisverðar síður

 

   

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Skessuhorn:

Heitt vatn fundið á Hvammi í Skorradal

Afturhaldsbröltinu lokið

segir Haukur Engilbertsson á Vatnsenda

23. febrúar 2000
Bormenn í Skorradal komu niður á heitt vatn í landi Eflingar í Hvammi aðfararnótt mánudags. Að sögn verkstjórans á staðnum var vatnið um 60 gráðu heitt á þessu dýpi en hitastigið fer hækkandi eftir því sem neðar dregur. Á mánudag var borinn kominn á um 400 metra dýpi og var ætlunin að bora eitthvað lengra áður en holan yrði rannsökuð.
Eins og komið hefur fram í Skessuhorni hafa boranirnar sem eru á vegum stéttarfélagsins Eflingar vakið hörð viðbrögð hreppsnefndar í Skorradal sem telur að hreppurinn eigi rannsóknarvinnu sem lagt var í fyrir nokkrum árum á þessum stað. Þá óttast hreppsnefnd að borhola sveitarfélagsins sé í uppnámi vegna þessara framkvæmda. Ekki eru þó allir íbúar sveitarfélagsins ósáttir við framkvæmdir Eflingar. Eigendur jarðanna Dagverðarness og Vatnsenda sem liggja að Hvammi hafa fagnað þessum borunum. Þessir aðilar hafa ekki viljað nýta sér vatn úr borholu hreppsins en á báðum jörðunum eru þéttar sumarhúsabyggðir. Haukur Engilbertsson bóndi á Vatnsenda sagði í samtali við Skessuhorn að vel kæmi til greina af sinni hálfu að nýta vatn frá borholunni í Hvammi. “Ég fagna því að afturhaldsbrölti hreppsnefndarinnar skuli nú lokið og vona að þetta verði til þess að það verði aftur búandi hér í sveitarfélaginu,” sagði Haukur.
GE
 
 
Senda á Facebook
 
Vefpóstur
Skessuhorn fréttasafn
Vestfirðir Suð-Austurland Vesturland Austurland Norðurland Suð-Vesturland Landið allt Suðurland
Kjalarnes 22:50  SSV 4  7°C
Akrafjall 22:50  ASA 2  7°C
Hafnarfjall 22:50  SSA 6  7°C
Vatnaleið 22:50  S 3  6°C
Hraunsmúli 22:50  S 1  7°C
Fróðárheiði 22:50  V 4  4°C
Brattabr. 22:50  SSV 5  5°C
Holtav.h. 22:50  NA 1  3°C
Laxárdalsh. 22:50  A 4  4°C
Svínad. 22:50  ASA 4  6°C
 
 
Samstarfsaðilar
Aðsendar greinar
 
Sveitarfélögin - fréttir
 
Fyrirtæki, stofnanir, þjónusta:
 
mbl.is - innlent