"Mér líður vel, en ég er samt ennþá dálítið hissa" sagði Sóley Fjalarsdóttir í samtali við blm Skessuhorns þar sem hún var að æfa á frjálsíþróttavellinum í Ólafsvík. Sóley sem er 16 ára gömul og býr á Hellissandi hóf að æfa frjálsar þegar hún var 6 ára gömul og samhliða frjálsum hefur hún einnig keppt í fótbolta og sundi. Sóley, sem er ekki komin með bílpróf og hefur þurft að sækja æfingar til Ólafsvíkur, hefur átt því láni að fagna að eiga góða að sem hafa keyrt hana á milli æfinga, bæði til Ólafsvíkur og einnig til Reykjavíkur þegar hún og önnur stúlka frá Hellissandi voru valdar í úrtak í landsliðshóp í fótbolta í fyrrahaust.
Sóley sem á héraðsmet í flokki 11-12 ára í spjótkasti og boðhlaupi er ekki allsendis óvön að stíga á verðlaunapall, því hún hefur stigið 130 sinnum á verðlaunapall þrátt fyrir ungan aldur. Á síðasta ári tók hún við 16 verðlaunapeningum, þar af voru 9 gull, 4 stk silfur og 3 bronspeningar.
Sóley sem er í sumarvinnu í fiski, æfir stíft þessa dagana þar sem framundan er þátttaka í frjálsum íþróttum sem fram fara í Stykkishólmi þann 13. júní n.k. Skessuhorn óskar Sóleyju til hamingju með titilinn. |