Skessuhorn: |
|
Einkaherbergi á Hótel Búðum |
29 af 50 nýjum herbergjum verða einkaherbergi |
14. júní 2000 |
| Framkvæmdir hefjast senn við niðurrif viðbyggingar á Hótel Búðum. |
Fasteignafélagið Kaupstaður í eigu Viktors Sveinssonar hótelhaldara að Búðum og Ingvars Þórðarsonar, athafnamanns í Reykjavík hefur sótt um byggingaleyfi fyrir nýrri hótelbyggingu að Búðum. Byggt verður í anda eldra hótelsins sem á sér 50 ára litríka sögu og reynt eftir fremsta megni að nýta það sem hægt er af eldri byggingunum sem fyrir eru.
Meðal nýjunga í hótelrekstrinum er sú að boðin verða til kaups einkaherbergi á hótelinu til afnota fyrir einstaklinga og fjölskyldur þeirra. Einstaklingurinn mun eignast sitt eigið herbergi ásamt skilgreindri sameign. Hótelið mun síðan endurleigja herbergið en eigandinn mun hafa fastan aðgang að herberginu eina helgi á mánuði yfir sumartímann og ótakmarkaðan yfir vetrartímann. Hægt verður að hafa persónulega muni í herberginu. Þegar er búið að afgreiða umsóknina og mun hún fara í grenndarkynningu. Að grenndarkynningu lokinni mun byggingarleyfið væntanlega liggja fyrir. Fasteignafélagið Kaupstaður hefur þegar fengið leyfi til að rífa viðbyggingu og Sandholtshúsið, en þakinu mun verða lyft og ný hæð steypt ofan á. |
|
| EE |
| |
 |
| |
|
|