Prentað fimmtudaginn 23. maí kl. 11:00 af www.skessuhorn.is
Yfirflokkur: Fyrirtæki - þjónustaYfirflokkur: FólkiðYfirflokkur: StjórnsýslaYfirflokkur: Skessuhorn
Spurning vikunnar

Fylgist þú með íslenska boltanum?

Já, alltaf

Já, stundum

Nei, aldrei

Vil ekki svara

Leitarvélar
Skessuhorn
Leit.is
Símaskrá
Firmaskrá
Embla
Google
Athyglisverðar síður

 

   

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Skessuhorn:

Snæfellsbær:

Frjósemi meðal fólks og fyrirtækja

5. mars 2001
Eins og fram hefur komið er frjósemi er mikil í Snæfellsbæ um þessar mundir. Fæðingar á árinu 2000 urðu alls 33 en voru 24 árið 1999. Það met mun þó að líkum falla því fyrir mitt þetta ár munu 28 konur verða léttari í bæjarfélaginu.

Gróskan nær þó enn lengra en til ávaxta hins rómantíska því önnur gerð frjósemi setur nú mark sitt á atvinnulíf bæjarins. Sú frjósemi er þó af efnahaglegum toga fremur erótískum.
Í Snæfellsbæjarfréttum er greint frá helstu hræringum í atvinnulífinu:

Ný verslun hefur verið opnuð að Ólafsbraut 19, er það Tækja og tölvubúðin, sem hjónin Þröstur Kristófersson og Sigurbjörg Þráinsdóttir reka, ásamt börnum sínum. Þar eru til sölu m.a. tölvur, símar og allt sem viðkemur skrifstofu.

Eigendaskipti hafa orðið á Grillskálanum, sem nú heitir Prinsinn. Nýir eigendur koma frá Grundarfirði.

Þann 10. feb.s.l. opnaði Guðmunda Wium verslun í kjallaranum hjá sér, hefur hún til sölu m.a. frumbyggjavöru,búsáhöld og handunnin kerti.

Starfsemi er komin í fullan gang í enduruppbyggingunni hjá Ísverksmiðju Breiðafjarðar ehf. eftir brunann sem varð í janúar. Að sögn Bjarna Einarssonar eiganda Breiða ehf. stefnir hann að því að verkssmiðjan komist í gang í mars n.k. full afköst verksmiðjunnar verða um 60 tonn á sólarhring.

Eins og fram hefur komið á Skessuhornsvefnum standa miklar framkvæmdir yfir í Rifshöfn. Miklar framkvæmdir eru einni áætlaðar í Arnarstapahöfn. Þar sem Arnarstapahöfn er eina virka höfnin á sunnanverðu Snæfellsnesi eru mikils vænst af þessum framkvæmdum. Smábátaútgerðin verður betur sett svo og vaxandi fjöldi ferðamanna sem fer með skoðunarbátnum Nökkva til að sjá hina stórbrotnu stuðlabergsströnd, renna fyrir fisk á sjóstöng og fara í hvalaskoðun.

Þegar er búið að veita fé til framkvæmdanna bæði af ríki og bæ svo nú er beðið eftir tilskyldum leyfum og samþykktum á mannvirkjum til að framkvæmdir geti hafist.
BMK
 
 
Senda á Facebook
 
Vefpóstur
Skessuhorn fréttasafn
Vestfirðir Suð-Austurland Vesturland Austurland Norðurland Suð-Vesturland Landið allt Suðurland
Kjalarnes 10:50  ANA 12  5°C
Akrafjall 10:50  ASA 2  7°C
Hafnarfjall 10:50  NV 3  6°C
Vatnaleið 10:50  SA 10  2°C
Hraunsmúli 10:50  A 5  4°C
Fróðárheiði 10:50  ASA 12  -0°C
Brattabr. 10:50  S 8  3°C
Holtav.h. 10:50  SSV 8  4°C
Laxárdalsh. 10:50  S 3  6°C
Svínad. 10:40  S 7  5°C
 
 
Samstarfsaðilar
Aðsendar greinar
 
Sveitarfélögin - fréttir
 
Fyrirtæki, stofnanir, þjónusta:
 
mbl.is - innlent