Umfangsmikil leit hefur staðið yfir frá áramótum að þrettán hrossum frá bænum Oddstöðum í Lundarreykjadal en að sögn Sigurðar Odds Ragnarssonar eiganda þeirra munu þau hafa fælst við flugeldaskotríð á gamlárskvöld og hefur ekkert spurst til þeirra síðan. Leitað hefur verið úr lofti og farið á vélsleðum og hestum vítt og breytt um afrétt Lunddælinga og Andkílinga og nærliggjandi fjalllendi auk þess sem fyrirspurnum hefur verið haldið uppi. Að minnsta kosti sjö hrossanna í Oköxlinni eru frá Oddstöðum en eitt þeirra er ekki búið að bera kennsl á.
Það var Snorri Jóhannesson bóndi á Augastöðum sem fann fyrst, fyrir tilviljun, vísbendingu um slasaða eða nýdauða skepnu upp undir Oki, eftir því sem hann segir. “Ég fór að svipast um eftir að tófan hætti að sína áhuga á ætinu sem ég hef verið að egna fyrir hana. Mig grunaði þá að hún hefði fundið sér einhversstaðar meira spennandi veitingar. Það var ekki fyrr en þriðja daginn sem ég leitaði sem ég rakst á blóðrefjar í snjónum og greinilegt að þar hafði refurinn grafið eitthvað æti. Við leituðum síðan þrír saman á þessum slóðum á vélsleðum, ég Sigurður Oddur og Halldór Sigurðsson og rákumst þá á hrossin dauð í snjónum,” segir Snorri.
Enn eru ófundin sex hross frá Oddstöðum en Sigurður Oddur kveðst vera vonlítill um að finna þau á lífi. “Það er nánast öruggt að það eru fleiri hross þarna undir snjónum því meðal annars vantar folald sem átti að fylgja einni hryssunni sem þarna er,” segir Sigurður Oddur.
Fyrir tæpum mánuði sást hinsvegar níuhesta hópur upp af Giljum í Hálsasveit og fór Sigurður Oddur við þriðja mann að leita þeirra. Í þeirri ferð fundust aðeins þrjú hross úr hópnum en ekkert hefur orðið vart við hin sex þrátt fyrir ítarlega leit. |