Skessuhorn: |
|
Danskur læknir í Ólafsvík |
|
10. apríl 2001 |
Nýr læknir hefur hafið störf á Heilsugæslustöðinni í Ólafsvík. Sú heitir Gunda Nygård og kemur frá Danmörku.
Skessuhorn sló á þráðinn til Gunda og spurði hana hvers vegna Ísland hefði orðið fyrir valinu. |
“Ég vann í tíu ár á sjúkrahúsi í Danmörku eftir að ég lauk námi og fór þaðan til Noregs þar sem ég hef búið síðan á mörgum stöðum. Þar hitti ég svo núverandi eiginmann minn og okkur hafði langað að breyta aðeins til þegar ég kom auga á auglýsingu þar sem óskað var eftir lækni til Íslands. Maðurinn minn hvatti mig til að sækja um og ég gerði það. Svoleiðis að þetta var eiginlega bara ævintýraþrá.”
Börn Gunda eru öll vaxin úr grasi svo hún og eiginmaðurinn komu bara tvö til Íslands en hann er í atvinnuleit eins og er. Gunda segir að þeim hjónum lítist vel á Ísland og Ólafsvík og þau hafa ákveðið í sameiningu að dveljast þar í að minnsta kosti fimm ár.
“Ísland hefur virkað mjög jákvætt á okkur. Tungumálið er reyndar vandamál en ég er á námskeiði eins og er og allir hafa verið mjög hjálplegir.”
Blaðamanni hafði borist til eyrna skemmtileg saga um að þau hjónin hefðu gert sér lítið fyrir og pantað sér bifreið á veraldarvefnum áður en þau komu hingað. Gunda skellir upp úr aðspurð um málið. “Já, við sáum fram á að erfitt yrði að taka bílinn okkar með til Íslands.
Okkur fannst líka að bíllinn yrði að vera til staðar um leið og við kæmum til landsins. Þess vegna höfðum við samband við Brimborg á netinu og þeir gerðu sér lítið fyrir og sóttu okkur í flugstöðina í Keflavík á nýja bílnum okkar!” |
|
| SÓK |
| |
 |
| |
|
|