Skessuhorn: |
Forðagæslumenn á ferð um sveitir |
Í lagi hjá flestum |
segir Stefán Kalmansson bæjarstjóri Borgarbyggðar |
22. mars 2000 |
| Vegna umræðu um meinta vanfóðrun á skepnum í Borfjarðar- og Mýrasýslu að undanförnu hefur Borgarbyggð látið flýta vorskoðun forðagæslumanna. Sami háttur hefur einnig verið hafður á í Borgarfjarðarsveit og að undanförnu hafa forðagæslumenn þessara sveitarfélaga farið á milli bæja og kannað heyforða og hirðingu búfjár. |
| Að sögn Stefáns Kalmanssonar bæjarstjóra Borgarbyggðar liggja fyrir grófar niðurstöður skoðunarinnar í Borgarbyggð. “Það hafa verið gerðar athugasemdir á fáeinum stöðum og eru það mál sem vinna þarf í. Það fer hinsvegar eftir viðbrögðum viðkomandi aðila hvort eitthvað þarf að aðhafast frekar. Flestir sinna sínum skepnum vel ekki síst þegar litið er til þess að veturinn hefur verið tiltölulega erfiður,” segir Stefán. |
|
| GE |
| |
 |
| |
|
|