Skessuhorn: |
|
Stefán á heimleið |
Óvíst hvort hann getur leikið í Grindavík |
28. maí 2000 |
| Knattspyrnumaðurinn Stefán Þórðarson er væntanlegur til landsins á morgun eftir að lið hans í þýsku 1. deildinni, Bayern Uerdingen, bjargaði sér frá falli í síðustu umferðinni. Þetta voru sérlega hagstæð úrslit fyrir Skagamenn því með þessum sigri losnaði Uerdingen við leika aukaleiki um sæti í 1. deildinni á næsta keppnistímabili. Það hefði þítt að Steán hefði komið seinna heim en vænst var. |
Slæmu fréttirnar eru hinsvegar þær að Stefán meiddist á baki og óvist hvort hann getur leikið með Skagamönnum gegn Grindavík á fimmtudag. Stefán gengst undir læknisskoðun eftir að hann kemur heim annað kvöld og þá kemur væntanlega í ljós hversu alvarleg meiðsli hans eru.
Það er einnig mögulegt að Færeyingurinn sókndjarfi Uni Arge verði í hópnum gegn Grindavík en hann er óðum að ná sér eftir meiðsli sem hann hlaut í fyrsta leik mótsins. |
|
| GE |
| |
 |
| |
|
|