Skessuhorn: |
|
Margir á tjaldstæðum í Borgarfirði |
Einmuna veðurblíða og ótti við jarðskjálfta talin |
25. júní 2000 |
| Miðað við seinustu júníhelgi ár hvert, var óvenju mikil umferð ferðafólks um Vesturland um helgina. Veðurspá fyrir svæðið var mjög hagstæð og gekk hún eftir. Hitinn í Húsafelli var t.d. sá mesti á landinu fimmtudag og föstudag og hefur það vafalítið haft áhrif á fólk. Einnig gera menn því skóna að margir Sunnlendingar og höfuðborgarbúar hafi einfaldlega ekki viljað dvelja heima hjá sér vegna liðinna jarðskjálfta og óhugs sem enn býr í fólki vegna þeirra. |
Fullt var á flestum tjaldstæðum í Borgarfirði. Í Húsafelli er áætlað að um 3000 manns hafi gist í tjöldum auk þess sem margir voru á tjaldstæðunum á Varmalandi, Kleppjárnsreykjum, í Hafnarskógi og víðar um héraðið.
Ferðaþjónustufólk gerir því skóna að liðin helgi sé aðeins forsmekkurinn að þeirri næstu, en fyrsta helgin í júlí hefur mörg undanfarin ár verið mesta ferðahelgi sumarsins. Spá menn því að mun færri fari á Kristnitökuhátíð á Þingvöllum en stjórnendur hennar gera ráð fyrir og umferð fólks verði ekki síður á aðra staði landsins. |
|
| MM |
| |
 |
| |
|
|