Kjaramál hafa alltaf verið aðalviðfangsefni félagsins. Margt hefur áunnist í þeim efnum ýmist í beinum samningum félagsins við atvinnurekendur eða á vettvangi heildarsamtaka verkalýðshreyfingarinnar.
Sjúkrasjóður félagsins var stofnaður 1962. Sjóðurinn styrkir félagsmenn í veikinda og slysatilfellum eftir að launagreiðslum frá atvinnurekanda lýkur.
Félagið eignaðist fyrsta orlofshúsið um 1970 og nú á það 3 orlofshús sem leigð eru út til félagsmanna.
Félagið var stofnaðili að Lífeyrisssjóði Vesturlands 1970.
Félagið fékk fyrst fastan samastað 1964 þegar það tók á leigu herbergi að Borgarbraut 7. Árið 1968 flutti félagið að Skallagrímsgötu 6 þar sem komið var upp vísi að skrifstofu. Árið 1972 eignaðist félagið í fyrsta sinn eigið húsnæði þegar félafið keypti húsið að Gunnlaugsgötu 1, Snorrabúð þar sem félagið hafði aðstöðu þar til það flutti 1989 í núverandi húsnæði, Félagsbæ. Fastur starfsmaður var fyrst ráðinn 1978.
Með tilkomu Snorrabúðar skapaðist aðstaða til fræðslustarfs. Félagið hefur haldið fjölmörg námskeið fyrir félagsmenn í samstarfi við MFA og fleiri aðila, bæði starfsfræðslunámskeið og tómstundanámskeið.
Árið 1976 hóf félagið að gefa út fréttabréfið Félagsfréttir þar sem sagt var frá því helsta sem var að gerast hjá félaginu og kauptaxtar voru birtir. Félagsfréttir komu út, óreglulega þó, til ársins 1987 þegar Verkalýðsfélagið og Ungmennasamband Borgarfjarðar hófu útgáfu á héraðsfréttablaðinu Borgfirðingi og gáfu það út í 10 ár.
Enda þótt kjaramálin hafi jafnan verið efst á baugi í félagsstarfinu, hefur verið rúm fyrir aðra starfsemi, má þar nefna skemmtanir, leikhúsferðir, að ógleymdum skemmtiferðum að sumarlagi.
Ákveðið hefur verið í tilefni af 70 ára afmæli félagsins að skrá sögu félagsins, þar með talið saga þeirra félaga sem sameinast hafa Verkalýðsfélaginu Verslunarmannafélagið og Iðnsveinafélagið. Stefnt er að því að saga félagsins verði gefin út á 75 ára afmæli þess.
Vel væri þegið ef þeir sem eiga í fórum sínum efni sem tengist sögu félagsins vildu lána það. Þar getur verið um að ræða ljósmyndir úr starfi félagsins t.d. úr ferðalögum eða frá fundum, einnig myndir af fólki við störf. Eins ef til væru ritaðar frásagnir t.d ferðasögur eða dagbækur eða annað sem lýsti daglegu lífi alþýðufólks. Ef fólk vil láta myndir eða gögn af hendi við félagið má koma því á skrifstofu félagsins eða hafa samband símleiðis.
Stjórn félagsins hefur ákveðið að halda upp á 70 ára afmæli félagsins á alþjóðlegum baráttudegi verkafólks 1. maí n.k. |