Skessuhorn: |
Hitaveita Dalabyggðar: |
Tími til kominn að tengja |
|
19. maí 2001 |
| Hitaveita Dalabyggðar ehf. var formlega tekin í notkun í lok síðasta árs eins og áður hefur verið greint frá. Skessuhorn hafði samband við Einar Mathiesen, framkvæmdastjóra, hitaveitunnar og innti hann fregna af því hvernig gengi að fá íbúa til að tengjast hitaveitunni. |
| “Hitaveitan er búinn að tengja um 80 hús við veitukerfið og gert er ráð fyrir að að hægt verði að tengja um 150 fasteignir við kerfið svo þetta er rúmlega helmingurinn. Þetta mætti ganga hraðar fyrir sig en við erum engu að síður ánægðir með hvað íbúar hafa tekið vel við sér. Þann 31. júlí n.k. falla niður niðurgreiðslur til húshitunnar á svæðinu og viljum við því beina þeim tilmælum til fasteignaeigenda að þeir hugi að tengingu sem allra fyrst,” sagði Einar. |
|
| GE |
| |
 |
| |
|
|