Skessuhorn: |
|
Víkingur að fylla sig af síld |
en lítill kraftur í úthafskarfaveiðinni |
28. maí 2001 |
| Fjör virðist vera að færast í veiðar á norsk-íslensku síldinni. Í frétt frá Haraldi Böðvarssyni hf. kemur fram að Víkingur AK 100 er þessa stundina langt kominn með að fylla sig. Í kvöld verður ákveðið hvort Víkingur muni landa síldinni á Austfjörðum eða í Noregi. |
Ingunn AK 150 er komin með 250 tonn af kolmunna í sinni fyrstu veiðiferð með flottroll. Allur togbúnaður hefur reynst vel en eitthvað virðist kolmunnaveiðin vera farin að tregast. Ingunn mun að öllum líkindum snúa sér að síldveiðum á næstu dögum ef veiðar fara að glæðast þar.
Lítill kraftur í úthafskarfaveiðinni Fram að þessu hefur lítill kraftur verið í úthafskarfaveiðunum á Reykjaneshrygg. Á þessum árstíma hefur jafnan verið góð veiði á undanförnum árum en þessa stundina er aflinn rúmlega 500 kg á togtímann og einhver skipanna farin að snúa sér að heimamiðum. Menn hafa þó ekki gefið upp alla von um að úthafskarfinn muni veiðast síðar en venja er. |
|
| |
 |
| |
|
|