Prentað miðvikudaginn 22. maí kl. 21:52 af www.skessuhorn.is
Yfirflokkur: Fyrirtæki - þjónustaYfirflokkur: FólkiðYfirflokkur: StjórnsýslaYfirflokkur: Skessuhorn
Spurning vikunnar

Fylgist þú með íslenska boltanum?

Já, alltaf

Já, stundum

Nei, aldrei

Vil ekki svara

Leitarvélar
Skessuhorn
Leit.is
Símaskrá
Firmaskrá
Embla
Google
Athyglisverðar síður

 

   

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Skessuhorn:

Holræsin í hart

28. febrúar 2002
Í bæjarstjórn Akraness er hart tekist á um hækkun á holræsagjaldi en hækkunin tók gildi árið 1999.
Fulltrúar sjálfstæðisflokks í bæjarstjórn halda því fram að tekjur vegna hækkunar gjaldsins hafi verið eyrnamerktar til framkvæmda við úthlaupum bæjarins en þær framkvæmdir hafi ekki enn hafist. Tekjurnar runnu til Akranesveitu sem hafði með höndum viðhald og framkvæmdir vegna holræsakerfisins en stofnunin hefur nú verið sameinuð Orkuveitu Reykjavíkur. Í skýringum bæjarritara Akranesbæjar vegna málsins kemur fram að þrátt fyrir hækkun hafi holræsagjaldið ekki nægt til að standa undir viðhaldi og endurbótum á holræsakerfi bæjarins á árunum 1999 og 2000.
Gunnar Sigurðsson bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokks ýjaði að því að umrædd stjórnsýsla varðaði við lög og gagnrýndi meirihlutann fyrir að hafa ekki komið með tillögur um breytingar fyrst ljóst hafi verið að fyrirhugaðar framkvæmdir rúmuðust ekki innan viðkomandi fjárhagsramma.

360 milljónir

Að sögn Jóns Pálma Pálssonar bæjarritara liggur fyrir að fara þarf í gífurlega kostnaðarsamar framkvæmdir vegna holræsakerfisins og samkvæmt frumathugunum er kostnaðurinn við þær um 360 milljónir. Á þessu ári er gert ráð fyrir að verja um 30 milljónum til framkvæmdanna. Í bókun meirihluta bæjarráðs á síðasta fundi þess segir m.a. að ljóst sé sveitarfélög á Íslandi þurfi atbeina ríkisvaldsins til slíkra stórframkvæmda þar sem tekjustofnar sveitarfélaganna nægi engan veginn til að standa undir slíkum kostnaði.
GE
 
 
Senda á Facebook
 
Vefpóstur
Skessuhorn fréttasafn
Vestfirðir Suð-Austurland Vesturland Austurland Norðurland Suð-Vesturland Landið allt Suðurland
Kjalarnes 21:40  NNV 1  6°C
Akrafjall 21:40  NV 4  5°C
Hafnarfjall 21:40  N 2  6°C
Vatnaleið 21:40  NV 3  3°C
Hraunsmúli 21:40  V 3  4°C
Fróðárheiði 21:40  V 2  1°C
Brattabr. 21:40  VNV 3  1°C
Holtav.h. 21:40  V 0  2°C
Laxárdalsh. 21:40  A 3  3°C
Svínad. 21:40  NNV 1  1°C
 
 
Samstarfsaðilar
Aðsendar greinar
 
Sveitarfélögin - fréttir
Snæfellsbær: Allir á sjó
Grundarfjarðarbær: Köttur í óskilum
Stykkishólmsbær: Tilkynning - Athugið
Stykkishólmsbær: 296. fundur bæjarstjórnar
Borgarbyggð: Ljóð unga fólksins
 
Fyrirtæki, stofnanir, þjónusta:
 
mbl.is - innlent