Stærðfræðikeppni fyrir nemendur í áttunda, níunda og tíunda bekk grunnskóla á Vesturlandi var haldin í Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi í lok síðasta mánaðar. Þátttakendur voru rúmlega 160 talsins. Keppni þessi er upprunnin hjá Flensborgarskólanum í Hafnarfirði og þar eru verkefnin búin til. Hún er haldin samtímis við framhaldsskóla víða um land. Þetta er í fjórða sinn sem unglingum af Vesturlandi gefst kostur á að taka þátt í keppninni. Sl. mánudag var samkoma á sal Fjölbrautaskóla Vesturlands þar sem 10 efstu úr hverjum árgangi og voru veitt vurkenningarskjöl. Þrír efstu í hverjum árgangi fengu að auki peningaverðlaun, fyrsta sætið í hverjum árgangi gaf 15.000 kr., annað 10.000 kr. og þriðja sætið 5.000 kr. Þrír efstu í hverju árgangi voru sem hér segir: Áttundi bekkur: Jón Óskar Óskarsson Grunnskólanum í Borgarnesi í 1. sæti; Pawel Jerzy Swierczynski Grunnskólanum Hellissandi í 2. sæti; Almar Gunnarsson Brekkubæjarskóla í 3. sæti. Níundi bekkur: Elísa Guðrún Elísdóttir Grundaskóla í 1. sæti; Eyrún Jóna Reynisdóttir Grundaskóla í 2. sæti; Brynja Sif Hjaltadóttir Heiðarskóla í 3.-5. sæti; Ólafur Hrafn Magnússon Grunnskóla Eyrarsveitar í 3.-5. sæti; Silja Ósk Þórðardóttir Grunnskólanum Hellissandi í 3.-5. sæti. Tíundi bekkur: Ólöf Erla Hauksdóttir Grunnskólanum í Borgarnesi í 1. sæti; Hans Pétursson Brekkubæjarskóla í 2. sæti; Heiða Lind Heimisdóttir Grunnskólanum í Stykkishólmi í 3. sæti. |