Skessuhorn: |
|
Íbúar í Snæfellsbæ ósáttir við snjómokstur |
|
13. janúar 2004 |
| Íbúar Snæfellsbæjar eru óhressir með snjómokstur vega í sveitarfélaginu, sérstaklega veginn um Staðarsveit og um Fróðárheiði. “Það hafa margir íbúanna haft samband við mig og kvartað. Vegna þess hvernig staðið hefur verið að snjómokstri á þessari leið hafa margir valið að fara Vatnaleiðina frekar þrátt fyrir að það sé lengri leið,” segir Kristinn Jónasson bæjarstjóri Snæfellsbæjar. |
| Samkvæmt reglum Vegagerðar ríkisins, varðandi snjómokstur, er vegakerfinu skipt í flokka eftir umferðarþunga og hækkar þjónustustigið í samræmi við bílafjölda sem fara um vegina. “Það má náttúrulega segja að það gerist sjálfkrafa að umferðin er meiri þar sem þjónustustigið er hærra ef tvær eða fleiri leiðir eru í boði. Það er því spurning hvort er á undan hænan eða eggið í þessu tilfelli. Ég er ekki að segja að þjónustan hér sé slæm en hún er ekki sambærileg við Vatnaleiðina t.d. og að ég tali ekki um þegar sunnar dregur á Snæfellsnesvegi,” segir Kristinn. |
|
| |
 |
| |
|
|