Á heimasíðu HB Granda segir m.a.: “Skipið hefur verið hið mesta happafley og gott sjóskip. Haraldur Böðvarsson AK 12 hefur fært mikinn afla á land undir stjórn þriggja skipstjóra og nemur aflinn alls 117.784 tonnum af bolfiski og framreiknað aflaverðmæti skipsins á þessum tíma er rúmir 6,5 milljarðar króna. Kristján Pétursson var skipstjóri á skipinu frá 1975, Gunnar Einarsson frá 1986 og Viðar Gunnarsson frá 1992. Skipstjóri í síðustu veiðiferðinni var Árni Einarsson, 1. stýrimaður og yfirvélstjóri var Örn Helgason.” |