Í Skessuhorni sem kemur út síðar í dag kennir margra grasa. Auk frétta af mannlífi liðinnar viku má nefna frétt um fyrirætlanir um skíðalyftu á Snæfellsjökli, fjallað er um áhrif langvarandi kulda og þurrka á gróður, sagt frá leikjum vikunnar í knattspyrnunni og brottfalls nánast alls byrjunarliðs Snæfells í körfuboltanum.
Þá rita 5 aðilar greinar í blaðið. Kristín Ármannsdóttir á Ytri Hólmi 1 skrifar um andstöðu sveitarstjórnar Innri Akraneshrepps um samþykkt íbúðabyggðar á jörð sinni, Jón Pálmi Pálsson, bæjarritari á Akranesi ber saman fjárhagsstöðu stærstu sveitarfélaganna, Finnur Torfi Hjörleifsson svarar gagnrýni Þorsteins bónda á Skálpastöðum á skrif sín, Þrúður Kristjánsdóttir í Búðardal ritar pistil um skólamál í Dölum og loks skrifar Ásmundur Uni Guðmundsson grein um mengunarmál á Skaga. |