Golfvertíðin fer vel af stað hjá Golfklúbbnum Leyni á Akranesi. Mikil gróska er í íþróttinni um allt land og er Akranes þar enginn eftirbátur. Að sögn Brynjars Sæmundssonar, framkvæmdastjóra, hafa nú yfir 60 nýir félagsmenn innritað sig í klúbbinn nú í vor og er það fólk á öllum aldri og af báðum kynjum, sá yngsti 6 ára og sá elsti 71 árs. Kristvin Bjarnason, golfleiðbeinandi Leynis, hefur haft í nógu að snúast við að leiðbeina nýjum golfurum, en mikill ávinningur er af því að læra réttu handtökin í golfinu strax frá upphafi.
Nýverið fékk kvennanefnd Leynis Ragnhildi Sigurðardóttur, fyrrverandi Íslandsmeistara kvenna í golfi, til að vera með þriggja daga golfkynningu á Akranesi, eingöngu ætlaða konum. Yfir 30 konur mættu á kynninguna, sem ber glöggt merki um vaxandi áhuga kvenna á golfíþróttinni á Akranesi.
Brynjar segir að Garðavöllur hafi komið vel undan vetri. “Mestu máli skiptir að púttflatirnar eru í góðu ástandi og hefur raunin orðið sú að Garðavöllur ber af öðrum golfvöllum hvað þetta varðar á þessu golfvori. Töluverðar gróðurskemmdir hafa verið á sumum golfvöllum í kringum okkur en á Akranesi eru púttflatirnar svo vel grónar og sléttar að um er talað. Er það besta auglýsing sem Garðavöllur getur fengið á meðal golfara.” |