Síðastliðinn laugardag var opnuð ný verslun Bónuss við Digranesgötu í Borgarnesi. Nýja verslunin er um 2000 fermetrar að stærð eða rúmlega tvöfalt stærri en sú gamla við Borgarbraut. Í nýju versluninni er boðið upp á alla vöruflokka sem Bónusverslanirnar hafa upp á að bjóða en í gömlu búiðinn var t.d. ekki pláss fyrir sérvöru.
Um leið og Jóhannes Jónsson, stofnandi Bónusverslananna hafði klippt á þar til gerðan borða á slaginu tíu streymdu viðskiptavinir inn í verslunina og var straumurinn stöðugur fram undir lokun.
Næstkomandi föstudag opnar Geira bakarí í Borgarnesi Konditorí í sama húsnæði og einnig mun ÍsMynd opna veitingastað og myndbandaleigu þar á næstu dögum.
|