Söngleikurinn Hunangsflugur og villikettir, eftir Flosa Einarsson, Einar Viðarsson og Gunnar S. Hervarsson, verður frumsýndur í Grundaskóla á Akranesi laugardaginn 5. nóvember klukkan 16:00. Undanfarnar vikur hafa nemendur í 7.-10. bekkjum skólans unnið þemaverkefni sem fjallar um tímabilið 1960 – 1970. Nemendur lærðu þar um tónlist, tísku og tíðaranda tímabilsins. Á þeim tímapunkti iðaði skólinn af lífi og voru nemendur mjög áhugasamir. Nokkuð var um að kennarar fengu spurninguna: ,,Varst þú uppi á hippatímanum?” Leikritið er framhald af þessu þemaverkefni enda gerist söngleikurinn á Akranesi árið 1970.
|
Rúmlega 30 krakkar taka þátt í söngleiknum auk þeirra sem sjá um förðun, greiðslu, búninga, ljós og tækniatriði ofl. Fleiri koma líka að sýningunni, s.s. nokkrir kennarar, Valgeir Skagfjörð og Vignir Jóhannsson sem hafa aðstoðað við leikstjórn og gerð sviðsmyndar, Karen Ólafsdóttir og Tinna Kristinsdóttir sem sömdu dansana. Nemendur hafa lagt hart að sér við uppsetningu og æfingar söngleiksins m.a. æft í vetrarfríinu.
Hér er um að ræða stórviðburð í skólastarfi Grundaskóla og því er ljóst að enginn má láta þessa sýningu fram hjá sér fara.
|