Prentað miðvikudaginn 19. júní kl. 18:17 af www.skessuhorn.is
Yfirflokkur: Fyrirtæki - þjónustaYfirflokkur: FólkiðYfirflokkur: StjórnsýslaYfirflokkur: Skessuhorn
Spurning vikunnar

Ferð þú á bæjar- eða héraðshátíð í sumar?

Já, fleiri en eina

Já, eina

Veit það ekki

Nei

Leitarvélar
Skessuhorn
Leit.is
Símaskrá
Firmaskrá
Embla
Google
Athyglisverðar síður

 

   

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Skessuhorn:

Sprenging í lóðaúthlutun á Akranesi og í Borgarbyggð

25. janúar 2006

Á árinu 2005 var úthlutað lóðum undir 279 íbúðir á Akranesi og í Borgarbyggð. Þetta er rífleg þreföldun frá árinu 2004 en þá var úthlutað lóðum undir 86 íbúðir í sveitarfélögunum tveimur. Þetta kemur fram í svari Árna Magnússonar félagsmálaráðherra á Alþingi við fyrirspurn Kjartans Ólafssonar. Þingmaðurinn spurði hversu mörgum lóðum sveitarfélög hafi úthlutað á árunum 2000-2005.

Á árinu 2000 var úthlutað lóðum undir 51 íbúð á Akranesi en engri í Borgarbyggð. Árið 2001 var aðeins 13 lóðum úthlutað þar af 10 á Akranesi. Árið 2002 var fjöldinn 55 á Akranesi en enginn í Borgarbyggð. Árið 2003 var fjöldinn 59 á Akranesi en engin úthlutun í Borgarbyggð. Á árinu 2004 var úthlutað lóðum undir 86 íbúðir eins og áður sagði og í fyrra var talan 279. Frá árinu 2001 til ársins í fyrra ríflega 20 faldaðist fjöldi íbúða sem umrædd sveitarfélög úthlutuðu lóðum undir.

 

Þá óskaði þingmaðurinn upplýsinga um hversu margar íbúðir hefðu verið fullgerðar sömu ár. Ekki liggja fyrir upplýsingar um árið 2005 en á árunum 2000-2004 voru 193 íbúðir fullgerðar á Akranesi, í Borgarbyggð voru 92 íbúðir fullgerðar, í Snæfellsbæ voru íbúðirnar 11 talsins og 14 á sama tíma í Stykkishólmi.

 

 
 
Senda á Facebook
 
Vefpóstur
Skessuhorn fréttasafn
Vestfirðir Suð-Austurland Vesturland Austurland Norðurland Suð-Vesturland Landið allt Suðurland
Kjalarnes 18:00  ASA 3  10°C
Akrafjall 18:00  ASA 4  11°C
Hafnarfjall 18:00  N 7  11°C
Vatnaleið 18:00  NNV 6  12°C
Hraunsmúli 18:00  NNA 10  14°C
Fróðárheiði 18:00  NV 10  10°C
Brattabr. 18:00  NNA 7  11°C
Holtav.h. 18:00  NNV 9  6°C
Laxárdalsh. 18:00  NNA 13  7°C
Svínad. 17:50  NNA 5  10°C
 
 
Samstarfsaðilar
Aðsendar greinar
 
Sveitarfélögin - fréttir
 
Fyrirtæki, stofnanir, þjónusta:
 
mbl.is - innlent