Bæjarráð Akraness hefur samþykkt að skipa vinnuhóp sem fari yfir og endurskoði lögreglusamþykkt bæjarins í heild sinni. Skipað verður í vinnuhópinn á næsta fundi ráðsins. Það var Þorvaldur Vestmann sviðsstjóri tækni- og umhverfissviðs sem lagði þetta til við bæjarráð. Í bréfi sem hann sendi ráðinu kemur fram að í núgildandi lögreglusamþykkt sé óheimilt að leggja við íbúðargötur eða almennum bílastæðum vörubifreiðum sem eru meira en 3,5 tonn að leyfðri heildarþyngd, nema þau séu sérstaklega til þess ætluð. |