Á næstunni verða fyrstu kerin í stækkun Norðuráls í Hvalfirði tekin í notkun. Ragnar Guðmundsson framkvæmdastjóri fjármála- og stjórnunarsviðs Norðuráls segir framkvæmdir á áætlun. Í upphafi var stefnt að gangsetningu fyrstu kerjanna um miðjan febrúar og segir Ragnar að sú tímasetning muni að öllum líkindum standast. Alls bætast á þessu ári 260 ker við í verksmiðjunni og er stefnt að því að þau verði öll komin í rekstur síðla sumars. Afkastageta verksmiðjunnar hefur þá aukist úr 90 þúsund tonna framleiðslu á ári í 220 þúsund tonn. Þessari stækkun hafa fylgt gríðarleg umsvif á Grundartanga og hafa um 600 starfsmenn unnið við það verkefni sem lýkur um mitt þetta ár. |