Bæjarráð Akraness hefur hafnað ósk frá Trésmiðjunni Akri um leyfi til að skipuleggja og byggja íbúðarhúsnæði á bílastæðum við Jörundarholt sem áður voru sérstaklega ætluð fyrir vörubíla og önnur atvinnutæki. Beiðni félagins kemur í kjölfar ákvörðunar bæjarins um að útbúa sérstakt stæði til þessara hluta við Kalmansvelli. Í bréfi Trésmiðjunnar Akurs kemur fram að stæðið við Kalmansvelli geri stæðin við Jörundarholt óþörf og þau komi því vel til greina sem lóðir fyrir íbúðarhúsnæði. Kemur fram að hugsanlega megi reisa á öðru stæðinu tvö einbýlishús eða parhús og á hinu stæðinu megi hugsanlega reisa eitt einbýlishús. Óskaði fyrirtækið því eftir leyfi til þess að skipuleggja þessi svæði í nánu samráði við skipulagsnefnd.
Hafna uppbyggingu á bílastæði
AKRANES: Bæjarráð Akraness hefur hafnað ósk frá Trésmiðjunni Akri um leyfi til að skipuleggja og byggja íbúðarhúsnæði á bílastæðum við Jörundarholt sem áður voru sérstaklega ætluð fyrir vörubíla og önnur atvinnutæki. Beiðni félagins kemur í kjölfar ákvörðunar bæjarins um að útbúa sérstakt stæði til þessara hluta við Kalmansvelli. Í bréfi Trésmiðjunnar Akurs kemur fram að stæðið við Kalmansvelli geri stæðin við Jörundarholt óþörf og þau komi því vel til greina sem lóðir fyrir íbúðarhúsnæði. Kemur fram að hugsanlega megi reisa á öðru stæðinu tvö einbýlishús eða parhús og á hinu stæðinu megi hugsanlega reisa eitt einbýlishús. Óskaði fyrirtækið því eftir leyfi til þess að skipuleggja þessi svæði í nánu samráði við skipulagsnefnd. |