Guðmundur Björn Þorbjörnsson, heimspekinemi við HÍ skrifar mjög athyglisverða grein um lífsþreytt fjárhyggjufólk nútíma íslensks samfélags. Þar segir hann m.a: "Ég hef lengi vel undrað mig á þessu sérsíslenska hugtaki “skammdegisþunglyndi”, og hversu djúpstæð áhrif það virðist hafa innan íslensks samfélags. Orðið eða hugtakið er ekki að finna í íslensku orðabókinni, en það er samansett úr tveimur merkilega ólíkum orðum. Skammdegisþunglyndið kemur yfir fólk þegar daginn tekur að stytta (oftast með haustinu) og myrkrið lúrir yfir landanum meirihluta sólarhringsins.
Sjá pistilinn í heild sinni hér undir "Aðsendar greinar".