Prentað fimmtudaginn 20. júní kl. 07:29 af www.skessuhorn.is
Yfirflokkur: Fyrirtæki - þjónustaYfirflokkur: FólkiðYfirflokkur: StjórnsýslaYfirflokkur: Skessuhorn
Spurning vikunnar

Ferð þú á bæjar- eða héraðshátíð í sumar?

Já, fleiri en eina

Já, eina

Veit það ekki

Nei

Leitarvélar
Skessuhorn
Leit.is
Símaskrá
Firmaskrá
Embla
Google
Athyglisverðar síður

 

   

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Skessuhorn:

Badmintonfélag Akraness verður 30 ára

1. mars 2006

Í tilefni af 30 ára afmæli Badmintonfélags Akraness verður haldið Íslandsmót unglinga í badminton á Akranesi dagana 3. til 5 mars nk. Á mótinu, sem haldið verður í íþróttahúsinu við Vesturgötu, verða um 250 keppendur frá öllu landinu á aldrinum 9 til 19 ára en þetta er í fyrsta sinn sem ungmenni undir 11 ára aldri fá að taka þátt í þessu móti. Þá verða um 70 keppendur frá Badmintonfélagi Akraness.

 

 

Félagið var formlega stofnað í nóvember 1976 en íþróttin hefur verið stunduð frá því að íþróttahúsið við Laugarbraut var tekið í notkun árið 1946. Síðan þá hefur badminton á Akranesi eflst og dafnað og fjölmargir Íslandsmeistaratitlar unnist í gegnum tíðina.

 

Laufey Sigurðardóttir, formaður félagsins segir 10 ár síðan félagið stóð fyrir Íslandsmóti unglinga eða á 20. afmælisári þess og því hefði verið tilvalið að fá að halda keppnina aftur núna. “Þetta verður mjög gaman, um 500 leikir verða spilaðir um helgina og því er von á miklu fjöri. Félagið er að gefa út afmælisrit sem verður dreift út til allra á Akranesi á næstu dögum og þar verður að finna ýmsar fréttir og gögn um félagið, viðtal við þjálfarann okkar, Dipu Gosh og margt fleira. Svo verður haldin formleg afmælishátíð í nóvember á þessu ári með pompi og pragt,” segir Laufey.

 

Badmintonfélag ÍA geymir nokkra bestu og efnilegustu badmintonspilara landsins og þess má geta að fjórir landsliðsmenn í unglingalandsliði 17 ára og yngri og tveir í U19 eru í röðum félagsins og því er óhætt að segja að hér sé efnilegt íþróttafólk á ferð.

 
 
Senda á Facebook
 
Vefpóstur
Skessuhorn fréttasafn
Vestfirðir Suð-Austurland Vesturland Austurland Norðurland Suð-Vesturland Landið allt Suðurland
Kjalarnes 07:20  S 1  10°C
Akrafjall 07:10  A 4  9°C
Hafnarfjall 07:20  SV 2  9°C
Vatnaleið 07:20  VNV 5  7°C
Hraunsmúli 07:20  NA 1  10°C
Fróðárheiði 07:10  VNV 6  6°C
Brattabr. 07:10  N 4  5°C
Holtav.h. 07:10  N 5  4°C
Laxárdalsh. 07:20  N 3  6°C
Svínad. 07:10  N 2  6°C
 
 
Samstarfsaðilar
Aðsendar greinar
 
Sveitarfélögin - fréttir
 
Fyrirtæki, stofnanir, þjónusta:
 
mbl.is - innlent