Í umræðum um tillöguna á fundi bæjarstjórnar var rædd sú hugmynd að fá fleiri aðila að málinu og gera gjöfina því stærri. Aðspurð hvort samþykkt tillögunnar beri vott um örvæntingu segir Björg svo alls ekki vera. Með gjöfinni sé ekki verið að skapa gulrót til frekari barneigna heldur sé með henni verið að færa nýfæddum Grundfirðingum nokkurs konar sængurgjöf samfélagsins og um leið eru þeir boðnir velkomnir í barnvænan bæ.
Eftir því sem næst verður komist hafa tveir Grundfirðingar fæðst á þessu ári.
|