Prentað miðvikudaginn 19. júní kl. 21:32 af www.skessuhorn.is
Yfirflokkur: Fyrirtæki - þjónustaYfirflokkur: FólkiðYfirflokkur: StjórnsýslaYfirflokkur: Skessuhorn
Spurning vikunnar

Ferð þú á bæjar- eða héraðshátíð í sumar?

Já, fleiri en eina

Já, eina

Veit það ekki

Nei

Leitarvélar
Skessuhorn
Leit.is
Símaskrá
Firmaskrá
Embla
Google
Athyglisverðar síður

 

   

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Skessuhorn:

Kraftmikil sýning á Vegas hjá NFFA

6. mars 2006

Að koma til Las Vegas er hverjum manni eftirminnilegt. Ekki svo að það valdi straumhvörfum í lífi venjulegs manns heldur er þar að finna hápunkt mannlegrar firringar. Áreitið sem mætir fólki er gríðarlegt og hvergi er undan því vikist. Léttirinn að komast þaðan er ekki minni en eftirvæntingin að komast þangað. Spilakassahljóðin og tónlistin var lengi að hljóðna í eyrum saklausra Íslendinga.

 Sjá leikrýni Halldórs Jónssonar hér að neðan:

 

Á laugardaginn frumsýndi leiklistarklúbbur Nemendafélags Fjölbrautaskólans á Akranesi leikritið og söngleikinn Vegas í leikstjórn Ólafs Sk. Þorvaldz. Ólafur er einnig höfundur verksins. Hann lærði leiklist við Arts Educational í London og hefur starfað í Bretlandi bæði sem leikari og leikstjóri. Hér á landi hefur hann m.a. farið með hlutverk í sýningum hjá Borgarleikhúsinu og hjá leikhópnum Kláusi.

Í stórum dráttum fjallar verkið um Djöfulinn og fjölskyldu hans sem telur þrjú börn. Hann er afar þreyttur á börnum sínum því þau hafa einstakt lag á að gera honum allt til miska. Til þess að losna við þau, um tíma að minnsta kosti, sendi hann þau uppá jörðina. Þar bíður þeirra göfugt verkefni að hans mati. Nefnilega að eyðileggja samband tveggja skemmtikrafta í Vegas þeirra Fanneyjar og Arons. Skemmtikraftarnir hafa unnið sér það til frægðar að vera bestu eftirhermur Marilyn Monroe og Elvis Arons Presley og skemmta sem slíkir við mikla aðdáun samborgara sinna. Ekki svo að skilja að í raun hafi þurft sjálfan Djöfulinn og börn hans til að eyðileggja svo mjög fyrir þeim því í kringum þau er mikið lið manna og kvenna sem greinilega kalla ekki allt ömmu sína í mannlegum samskiptum. Húsbóndinn á skemmtistaðnum, Ramon hinn spænskættaði, er ákveðinn stjórnandi og vill allt til vinna að ná ástum Fanneyjar og bendir henni ítrekað á þá staðreynd að hvergi sé henni betur borgið en í örmum hans.

 

Tónlistin er fyrirferðarmikill hlutur leikritsins því leikin eru og sungin lög eftir Rolling Stones, Creedence Clearwater Revival, Deep Purple, Queen og fleiri fræga listamenn. Lögin hafa öðlast íslenska texta höfundar leikritsins. Ekki er Vegas án dansa og þeir eru margir í leikritinu sem Ásta Bærings samdi. Samtals koma fram í verkinu yfir 40 leikarar og dansarar auk fimm manna hljómsveitar.

 

Þrátt fyrir brösótt æfingatímabil, eins og lesa má um í leikskrá, hefur tekist að setja upp mjög trúverðugt verk. Það er mjög kröftugt frá fyrstu mínútu til hinnar síðustu enda tónlistin ekki af verri endanum. Brjálsemin og mannfyrirlitning skemmtanaiðnaðarins kemst vel til skila þó einnig komi fram að ekki er öllum alls varnað þar á bæ. Ekki skal efni leikritsins rakið hér af tillitssemi við þá sem eiga eftir að berja það augum.

Ekki er ráðist á garðinn þar sem hann er lægstur með uppsetningu þessa verks. Það kallar á leikhæfileika, sönghæfileika og danshæfileika hjá flestum leikaranna. Flestir leysa sín verkefni af hendi af stakri prýði. Bjarni Freyr Björgvinsson í hlutverki Ramons var þó án efa fremstur meðal jafningja. Leikur hans var öruggur og söngur hans var frábær. Hann hefur mikla söngrödd drengurinn og er skýrmæltur.

Á köflum kom hinn sungni texti sýningarinnar ekki nægilega vel fram og verður það trúlega að skrifast á hljóðblöndun verksins. Raddir söngvaranna hefðu mátt vera framar í blöndun en það er nú reyndar alþekkt vandamál hér á landi. Hljómsveit sýningarinnar, sem fimm ungir drengir skipa, stóð sig frábærlega. Hljóðfæraleikurinn var mjög þéttur og nánast hnökralaus. Sviðsmyndin var einföld en skemmtileg og ekki spillti fyrir þáttur okkar ágæta Skessuhorns þar.

 

Sýningin Vegas er mjög vel unnin og að henni lokinni leiðir maður auðvitað hugann að því þrekvirki sem nemendur sýna til þess að koma henni á fjalirnar. Næturnar við æfingar eru eflaust margar og kennslustundirnar þar sem aðstandendur sýningarinnar hafa dottað eru eflaust ekki færri. Því má með hreinni samvisku hvetja alla sem vettlingi geta valdið til að sjá þessa líflegu sýningu.

Því miður er það nú svo að ekki þarf að fara alla leið til Las Vegas til þess að verða vitni að þeirri firringu sem þarna eru gerð svo góð skil.

 

 
 
Senda á Facebook
 
Vefpóstur
Skessuhorn fréttasafn
Vestfirðir Suð-Austurland Vesturland Austurland Norðurland Suð-Vesturland Landið allt Suðurland
Kjalarnes 21:20  V 1  11°C
Akrafjall 21:20  NA 4  12°C
Hafnarfjall 21:20  ANA 4  12°C
Vatnaleið 21:20  NV 5  10°C
Hraunsmúli 21:20  NNA 9  14°C
Fróðárheiði 21:20  NV 6  9°C
Brattabr. 21:20  NNA 2  8°C
Holtav.h. 21:20  NNV 6  5°C
Laxárdalsh. 21:20  NNA 10  5°C
Svínad. 21:10  NNV 5  7°C
 
 
Samstarfsaðilar
Aðsendar greinar
 
Sveitarfélögin - fréttir
 
Fyrirtæki, stofnanir, þjónusta:
 
mbl.is - innlent