Prentað laugardaginn 25. maí kl. 15:00 af www.skessuhorn.is
Yfirflokkur: Fyrirtæki - þjónustaYfirflokkur: FólkiðYfirflokkur: StjórnsýslaYfirflokkur: Skessuhorn
Spurning vikunnar

Hvernig líst þér á nýju ríkisstjórnina?

Mjög illa

Frekar illa

Hlutlaus

Frekar vel

Mjög vel

Leitarvélar
Skessuhorn
Leit.is
Símaskrá
Firmaskrá
Embla
Google
Athyglisverðar síður

 

   

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Skessuhorn:

Rás 2 rokkar hringinn - Verður á Akranesi 16. mars

8. mars 2006

AMPOP, Dikta og Hermigervill á tónleikaferð um landið!

Rás 2 mun leiða tónleikaferðalag um Ísland núna í marsmánuði. Heimsóttir verða 6 staðir á landsbyggðinni og endað í Reykjavík með beinni útsendingu á Rás 2. Þetta er í fyrsta skipti sem Rás 2 stendur fyrir tónleikaferð um landið, en áður hefur Rásin (sem er, samkvæmt nýjustu könnun Gallups, vinsælasta útvarpsstöð landsins) aðstoðað listamenn á borð við Jón Ólafsson, Jagúar, Bubba Morthens, Hörð Torfason og núna síðast Sign, við að rokka hringinn og bera fagnaðarerindið út um allt land.

 

Tónleikadagskráin lítur svona út:

10. mars Menntaskólinn á Egilsstöðum (ásamt hljómsveitinni Miri),
11. mars Græni Hatturinn, Akureyri (ásamt Hvanndalsbræðrum),
12. mars Menntaskólinn á Ísafirði (ásamt Húsinu á sléttunni),
14. mars Fjölbrautaskóli Suðurlands á Selfossi (ásamt hljómsveitinni Motýl),
15. mars Ráin, Reykjanesbæ (ásamt hljómsveitinni Koju)
16. mars Bíóhöllin, Akranesi (ásamt hljómsveitinni Planc)
17. mars Nasa, Reykjavík (ásamt hljómsveitinni Vax)

 

Nánari upplýsingar um tónleikadagskrána á ruv.is/poppland

 

Hljómsveitin AMPOP, sem hlaut bæði Íslensku tónlistarverðlaunin og  hlustendaverðlaun XFM á dögunum fyrir besta lag ársins 2005, ,,My Delusions", mun fara fyrir hópnum en samnefnd plata sveitarinnar er ein vinsælasta platan á Íslandi um þessar mundir og lög AMPOPs hljóma reglulega á allflestum útvarpsstöðvum landsins.

    
Hljómsveitin Dikta mun einnig stíga á stokk en plata sveitarinnar ,,Hunting for Happiness" frá því í fyrra hefur hlotið einróma lof gagnrýnenda og lagið ,,Breaking The Waves" er eitt af vinsælustu lögunum á Íslandi í dag.

 

Þriðji flytjandinn í tónleikaferð Rásar 2 um landið er Hermigervill en hann hefur vakið mikla athygli fyrir magnaða tónleika undanfarna mánuði. Auk þess mun Rás 2 bjóða einni efnilegri hljómsveit frá hverju sveitarfélagi sem heimsótt
verður að stíga á stokk og opna tónleikana í sínum heimabæ. Þetta er fyrsta tónleikaferð aðal-flytjendanna þriggja um landið en allir eiga þeir það sameiginlegt að hafa hlotið mikið lof fyrir tónleika sína.

 

Nánari upplýsingar veita:

 

Ólafur Páll Gunnarsson

verkefnisstjóri tónlistar á Rás 2

515-3000

olafurpg@ruv.is

 

Ásgeir Eyþórsson

framkvæmdastjóri ferðarinnar
696-9406
asgeir.eythorsson@internet.is

 

 

 

 
 
Senda á Facebook
 
Vefpóstur
Skessuhorn fréttasafn
Vestfirðir Suð-Austurland Vesturland Austurland Norðurland Suð-Vesturland Landið allt Suðurland
Kjalarnes 14:50  VSV 4  6°C
Akrafjall 14:50  SV 6  7°C
Hafnarfjall 14:50  SV 8  6°C
Vatnaleið 14:50  SA 7  4°C
Hraunsmúli 14:50  SSA 4  6°C
Fróðárheiði 14:50  A 7  4°C
Brattabr. 14:50  SSV 10  4°C
Holtav.h. 14:50  SSV 13  3°C
Laxárdalsh. 14:50  SV 10  6°C
Svínad. 14:50  S 8  5°C
 
 
Samstarfsaðilar
Aðsendar greinar
 
Sveitarfélögin - fréttir
 
Fyrirtæki, stofnanir, þjónusta:
 
mbl.is - innlent