Síðustu daga hefur verið unnið á fullum krafti við að leggja rafmagns,- hita- og kaldavatnslagnir að sumarbústaðalóðum á Syðri –Rauðamel í Kolbeisstaðahreppi. Síðastliðið vor seldi Kolbeinsstaðahreppur jörðina Syðri –Rauðamel einkahlutafélaginu Rauðamel ehf. en eigendur eru hópur íbúa í Kolbeinsstaðahreppi. Félagið heldur áfram með þær framkvæmdir sem hreppurinn var byrjaður á með skipulagningu á sumarbústaðalóðum. Nú er auk þess verið að skipulegga nýtt svæði fyrir sumarbústaði á jörðinni. Áætlað er að sumarbústaðareigendur fái svo heitt vatn og rafmagn í haust. |