Að undanförnu hefur talsverð umræða farið fram um möguleika Grundartangahafnar í framtíðaruppbyggingu Faxaflóahafna sf. Telja margir að í framtíðinni muni hún taka að nokkru við hlutverki Sundahafnar sem helsta inn- og útflutningshöfn svæðisins. Á ráðstefnu sem haldin var í síðustu viku um framtíð Faxaflóahafna tóku forsvarsmenn stóru skipafélaganna tveggja þátt í umræðum og einnig var viðtal við þá í blaði sem gefið var út í tengslum við ráðstefnuna.
Ásbjörn Gíslason, forstjóri Samskipa segir í viðtali við blaðið: „Hvað Samskip varðar sé ég fyrir mér að inn- og útflutningur okkar fari áfram um Vogabakka nema sértækur flutningur í tengslum við uppbyggingu álvera eða svæðisbundinn flutningur því tengdur, svipað og gerist á Austfjörðum. Ég sé það því ekki gerast að hluti af starfsemi okkar, innflutningur og fiskflutningar, flytjist til dæmis upp á Grundartanga. Vörumiðstöðin og frystigeymslan hér gegna mjög mikilvægu hlutverki í söfnunarferli Samskipa og það gengur ekki upp að slíta reksturinn þannig í sundur.“ |