Valgerður Sverrisdóttir iðnaðar- og viðskiptaráðherra leggur á næstu dögum fram á Alþingi stjórnarfrumvarp til laga um Nýsköpunarmiðstöð Íslands sem ríkisstjórnin hefur samþykkt að hennar frumkvæði og miðar við að lögfest verði fyrir þinglok í vor. Gert er ráð fyrir umfangsmikilli uppstokkun í opinberu stuðningskerfi nýsköpunar og atvinnuþróunar á vegum iðnaðar- og viðskiptaráðuneyta með því að sameina starfsemi Byggðastofnunar, Iðntæknistofnunar og Rannsóknastofnunar byggingariðnaðarins í Nýsköpunarmiðstöð Íslands með höfuðstöðvar á Sauðárkróki. Áfram verður tæknirannsókna- og frumkvöðlastarfsemi á Keldnaholti í Reykjavík. |