Árshátíð Varmalandsskóla í Borgarfirði verður haldin á morgun, laugardag. Unglingar hafa veg og vanda af hátíðinni og sýna m.a. leikritið ´68 kynslóðin eftir Margréti Traustadóttur. Það fjallar um lífið í húsmæðraskóla eins og það gerðist best hér á árum áður. Einnig verður sýndur dans og stuttmyndin Laxdæla sem 9. bekkur vann verður sett á hvíta tjaldið. Þær hljómsveitir sem verið hafa starfandi við skólann eftir áramót spila og gítarsnillingar stytta stundirnar áður en dagskráin hefst. Á milli atriða verður dregið í happdrætti. Að skemmtiatriðum loknum verður kaffihlaðborð þar sem hver getur raðað í sig að vild. Ágóðinn af hátíðinni rennur í ferðasjóð 10. bekkjar. |