Þá segir að á íbúafundi sem haldinn var í sumarbyrjun 2005 hafi eigendur og hluthafar ásamt fulltrúa verkalýðsfélagsins eftir vinnufriði til að ljúka þessu verkefni. Þá segir orðrétt í bréfinu: „Ítrekað allt síðastliðið sumar og í allan vetur hefur orðið vart við lyktarmengun frá fyrirtækinu þegar vindátt hefur staðið af því og á það við bæði húsin, Breiðargötu og Vesturgötu. Þegar reynt hefur verið að koma þeim kvörtunum til heilbrigðisfulltrúa, sem oftast hefur verið utan hefðbundins skrifstofutíma þegar við íbúarnir erum heimavið, hafa svörin verið að ekki sé hægt að bregðast við nema á skrifstofutíma nema líf liggi við. Vill heilbrigðiseftirlitið meina að það sé í verkahring lögreglu að taka við kvörtunum sem þessum“.
Íbúarnir segjast hafa gengið þrautagöngu í þessu máli og óska því hér með eftir að starfsleyfi fyrirtækisins verði ekki framlengt þegar það rennur út í apríl 2007 og að fyrirtækinu verði tilkynnt um það nú þegar „þar sem við teljum fullreynt að engin breyting hafi orðið á þessum reynslutíma.“
|