Samhliða gerð nýrra samstarfssamninga milli Akraneskaupstaðar og sveitarfélaganna sunnan Skarðsheiðar náðu fulltrúar sveitarfélaganna samkomulagi um skipulagsskrá fyrir áðurnefndar stofnanir og komu þær til fyrri umræðu í bæjarstjórn Akraness á þriðjudaginn. Í bókun sem bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins lögðu fram á fundinum bentu þeir á að hvorki stjórn Dvalarheimilisins Höfða né stjórn Byggðasafnsins á Görðum hafi fengið tækifæri til að fjalla um þær breytingar sem fyrirhugaðar eru á skipulagsskrá stofnananna. „Það er sjálfsögð og eðlileg krafa að kjörnar stjórnir þessara stofnana fái tækifæri til að fara yfir hugmyndir að breytingum á skipulagsskrám þeirra,“ segir í bókuninni.
Þá telja bæjarfulltrúarnir að með nýrri skipulagsskrá um Höfða sé í raun verið að leggja niður sjálfseignarstofnunina Höfða og því nauðsynlegt að stjórn fái tækifæri til að fara yfir málið og koma sínum sjónarmiðum á framfæri. „Einnig er nauðsynlegt að benda á að ekki hefur komið fram hver eru markmið þessara formbreytinga á rekstri Dvalarheimilisins Höfða,“ segir í bókuninni og einnig að ekki sé ljóst hverjar heimildir núverandi sveitarstjórna eru til að leggja niður sjálfseignarstofnunina.
Svipað er uppi hvað Byggðasafn Akraness varðar því í bókun sjálfstæðismannanna segir meðal annars: „Í 26. grein reglugerðar fyrir Byggðasafn Akraness og nærsveita, 2. málsgrein, segir: „Breytingar á reglugerð þessari verða eigi gerðar nema til komi samþykki meirihluta stjórnar safnsins og staðfesting eignaraðila þess”. Samkvæmt þessu er nauðsynlegt að stjórn byggðasafnsins fái tækifæri til að fjalla um þær breytingar sem meirihluti bæjarstjórnar Akraness leggur til á reglugerðinni.“
Þrátt fyrir þessar athugasemdir minnihluta bæjarstjórnar voru skipulagsskrárnar teknar til fyrri umræðu og að henni lokinni var samþykkt með níu samhljóða atkvæðum að vísa þeim til seinni umræðu.
|