Dagana 20. apríl (sumard. fysta) og til 23. apríl verður sýning á handverki og listiðnaði í Norska húsinu í Stykkishólmi. Á sýningunni verða fjölbreyttir munir unnir úr hráefni sem tengist Austurlandi þ. e. hreindýraskinni, hreindýrshorni og beini, lerki og líparíti. Sýndir verða munir frá tuttugu og sex aðilum. Sýnendur eru: Álfasteinn, Ásta Sigfúsdóttir, Dröfn Guðmundsdóttir, Dýrfinna Torfadóttir, George Hollanders, Guðmundur Magnússon, Guðmundur Sigurðsson, Guðný Hafsteinsdóttir, Guðrún Steingrímsdóttir, Fjölnir Björn Hlynsson, Hólmfríður Ófeigsdóttir, Jórunn Dóra Sigurjónsdóttir, Kristbjörg Guðmundsdóttir, Lára Gunnarsdóttir, Listiðjan Eik, Ólavía Sigmarsdóttir, Páll Kristjánsson, Philippe Ricart, Reynir Sveinsson, Rita Freyja Bach, Signý Ormarsdóttir, Sigurður Már Helgason, Úlfar Sveinbjörnsson, Þórey S. Jónsdóttir, Þórhallur Árnason og Þórólfur Antonsson. |