Prentað sunnudaginn 19. maí kl. 10:17 af www.skessuhorn.is
Yfirflokkur: Fyrirtæki - þjónustaYfirflokkur: FólkiðYfirflokkur: StjórnsýslaYfirflokkur: Skessuhorn
Spurning vikunnar

Fylgist þú með íslenska boltanum?

Já, alltaf

Já, stundum

Nei, aldrei

Vil ekki svara

Leitarvélar
Skessuhorn
Leit.is
Símaskrá
Firmaskrá
Embla
Google
Athyglisverðar síður

 

   

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Skessuhorn:

Krefjast framkvæmda á lóð Brekkubæjarskóla

11. apríl 2006

Stjórnir foreldrafélags og foreldraráðs Brekkubæjarskóla hafa með bréfi skorað á bæjarstjórn Akraness að flýta framkvæmdum á lóð Brekkubæjarskóla. Bæjarráð hefur falið bæjarstjóra að ræða við stjórnir félaganna. Í bréfinu kemur fram að það sé mat stjórnanna að of langur tími sé nú ætlaður í framkvæmdir en nú er unnið eftir þriggja ára áætlun við lóðaframkvæmdir. Segja foreldrarnir að bregðast þurfi við strax „og gefa börnunum almennilegt leiksvæði,“ eins og segir orðrétt í bréfinu.

 

Þá segir að nú séu áætlaðar 15 milljónir króna í lóðarframkvæmdir á þessu ári og ljóst sé að sú fjárhæð fari eingöngu í plan og bílastæði vegna tengingar við stækkun á anddyri skólans. Þá sé fyrirhugað að taka leiksvæði við Vesturgötuhlið skólans undir bílastæði. Á þessu leiksvæði séu í dag þrjár „niðurníddar áratugagamlar rólur og ein jafnvægisslá“ og þegar þessi tæki séu farin standi þá eftir gamall og þreyttur kastali. Þá segir að girðing sem afmarkar lóð skólans sé illa farin „ef hún er þá til staðar,“ segir í bréfinu.

Foreldrarnir telja að skólalóðin hafi setið alltof lengi á hakanum og því verði að gefa þeim 432 börnum sem sækja skólann „skólalóð sem þau geta leikið sér á og verið stolt af.“ Er þess krafist að þegar verði veitt aukafjárveiting til framkvæmda við lóðina og framkvæmdum lokið í sumar.

 

 

 
 
Senda á Facebook
 
Vefpóstur
Skessuhorn fréttasafn
Vestfirðir Suð-Austurland Vesturland Austurland Norðurland Suð-Vesturland Landið allt Suðurland
Kjalarnes 10:00  A 11  6°C
Akrafjall 10:00  ASA 11  7°C
Hafnarfjall 10:00  A 7  7°C
Vatnaleið 10:00  SSA 11  4°C
Hraunsmúli 10:00  SA 10  6°C
Fróðárheiði 10:00  SA 2  3°C
Brattabr. 10:00  S 12  3°C
Holtav.h. 10:00  SSV 10  3°C
Laxárdalsh. 10:00  SSV 5  4°C
Svínad. 10:00  S 8  4°C
 
 
Samstarfsaðilar
Aðsendar greinar
 
Sveitarfélögin - fréttir
Grundarfjarðarbær: Vinnuskóli sumarið 2013
Grundarfjarðarbær: Vorskóli
Stykkishólmsbær: Heilsuvika 2013
Hvalfjarðarsveit: Sundleikfimi
Stykkishólmsbær: Vorskólinn 2013
Stykkishólmsbær: Sýningin í Norska húsinu
 
Fyrirtæki, stofnanir, þjónusta:
 
mbl.is - innlent