Fyrir helgi stöðvaði lögreglan á Snæfellsnesi tvo menn sem óku um á fjórhjólum innan marka Þjóðgarðarins þar sem akstur slíkra tækja er með öllu óheimill. Í síðastliðinni viku hafði lögreglan svo afskipti af tveim börnum, 11 og 9 ára þar sem þau óku um á óskráðum fjórhjólum á svæðinu við Arnarstapa. Fjórhjól almennt eru skráningaskild og þar fyrir utan þarf ökumaður að hafa náð tilteknum aldri og hafa ökuréttindi til að mega aka slíkum tækjum. Börnin voru færð í foreldrahús og foreldrum var gerð grein fyrir hvaða reglur gilda yfir ökutæki sem þessi. Ólafur Guðmundsson, yfirlögregluþjónn Snæfellsness segir lögregluna hyggjast fylgja þessu tilviki fast eftir með auknu eftirliti fjórhjólaaksturs. Hann staðfestir að fjórhjól séu skráningarskild en þeim er ólöglegt að aka bæði á vegi sem og utan vegar. Þeim má aka á þartilgerðum æfingasvæðum, bændur mega nýta þau til landbúnaðarstarfa og björgunarsveitarmenn til björgunarstarfa. |