Því miður hefur það enn einu sinni gerst að Íslandspóstur hf. "klikkar" á dreifingu á Skessuhorni til áskrifenda blaðsins. Í morgun kom það í ljós að öll blöð, til annarra staða en Akraness og Borgarness, lágu óhreyfð í dreifingarmiðstöð Íslandspósts í Reykjavík. Þessi blöð verða borin út til áskrifenda á morgun, föstudaginn 28. apríl. Þetta mun vera í fjórða skipti á þessu ári (af 17 tölublöðum) sem Íslandspóstur misfer með dreifingu á Skessuhorni. Oftast hafa það verið tölublöð í einstök póstnúmer sem hafa verið send á ranga staði, en nú ber svo við að öll blöð sem Íslandspóstur dreifir koma degi of seint til áskrifenda. |
Þetta er með öllu óásættanlegt og hefur Skessuhorn ehf. lagt hart að forsvarsmönnum Íslandspósts að sagan endurtaki sig ekki. Hafa þeir lofað bæði bót og betrun. Engu að síður biðjum við áskrifendur afsökunar á því að blaðið kemur degi seinna í hendur þeirra, en tilefni stóð til. Skessuhorn hefur engin önnur ráð til að dreifa blaðinu til áskrifenda utan 300 og 310, en þau að treysta á þjónustu Íslandspósts. Það skal skýrt tekið fram að mistök þessi eru í öllum tilfellum rakin til starfsfólks Íslandspósts í Reykjavík, ekki til starfsmanna fyrirtækisins á Vesturlandi.
-ritstj. |