Í yfirlýsingu Vilhjálms segir að umrædd mynd hafi verið tekin eftir fund sem framsóknarmenn héldu 1.maí og var honum boðið á þann fund þar sem hann „fór yfir það helsta sem er að gerast í verkalýðsmálum á Akranesi“ eins og segir í yfirlýsingunni.
Þá segir einnig: „ Formaður Verkalýðsfélags Akraness vill að það komi skýrt fram að hann tilheyrir engum stjórnmálaflokki hvorki Framsóknarflokknum né öðrum flokkum. Enda er það mat formannsins að það sé andstætt hagsmunum félagsmanna Verkalýðsfélags Akraness að formaður félagsins tilheyri einum stjórnmálaflokki, þar sem félagsmenn VLFA koma úr öllum flokkum“.
|