Foreldrarnir telja mikið misræmi í fjárveitingum á milli grunnskóla sveitarfélagsins og segja að 50 milljónir króna séu ætlaðar framkvæmdir við lóð Grundaskóla næstu þrjú árin „sem teljast verður fullkláruð lóð miðað við lóð Brekkubæjarskóla“ segir í áskoruninni. Þá segir að jöfnuður sé nauðsynlegur milli skólanna og framkvæmdir við Brekkubæjarskóla hafi dregist alltof lengi. „Þar að auki er viðhaldi skólahúsnæðisins ábótavant, þannig að það liggur undir skemmdum, einkum að utan“.
Þá er einnig vakin athygli á því að gangbrautarljós og merkingar gangbrauta vanti við Merkigerði og víðar og er í því sambandi vísað í skýrslu Landsbjargar, sem gerði úttekt á þeim málum á sínum tíma. Einnig vilja foreldrarnir lækka hámarkshraða á götum við skólann í 30 km/klst. |