Nú standa yfir vortónleikar hjá Tónlistarskóla Borgarfjarðar. Nemendur skólans flytja tónlist frá ýmsum löndum. Í dag eru tónleikar í sal skólans að Borgarbraut 23 Borgarnesi kl. 18:00, á morgun, fimmtudag verða söngdeildartónleikarnir kl. 18:00. Föstudag og mánudag verða einnig tónleikar í skólanum sem hefjast kl. 18:00. Síðustu tónleikarnir verða á mánudagskvöld kl. 20:30 í Logalandi. Vortónleikarnir eru jafnframt skólaslit, en nemendur fá afhent prófskírteini í lok hverra tónleika. Tónleikar tónlistarskólans eru öllum opnir. |
Theodóra Þorsteinsóttir skólastjóri segir starfið í Tónlistarskóla Borgarfjarðar hafi verið fjölbreytt í vetur. "Auk hinna hefðbundnu jóla- og vortónleika var skólinn m.a. með tónlistardagskrá í tilefni af Degi íslenskrar tungu í nóvember, atriði úr söngleiknum "Litla stúlkan með eldspýturnar" voru flutt við mikla hrifningu í desember og einnig fluttu nemendur og kennarar tónlist ertir Wolfgang Amadeus Mozart á 250 ára afmælisdegi hans í janúar síðastliðnum.”
Síðastliðna viku hafa nemendur verið í prófum, en nemendur taka áfangapróf, stigspróf og vorpróf. Að þessu sinni þreyttu 16 nemendur áfangapróf, 25 nemendur luku stigsprófum og aðrir tóku vorpróf, en í vetur hafa um 230 nemendur stundað nám við tónlistarskólann. Nú í vor leggja nemendurnir inn endurumsókn fyrir næsta vetur og einnig er tekið við nýjum umsóknum í skólann á skrifstofu skólans, á netfangið tskb@simnet.is og í síma 437 2330.
|